Eins og titillinn gefur til að kinna þá er allt á milljón að undibúa brúðkaupið okkar sem er bara eftir mánuð Ohhhh þetta er ekkert smá gaman en samt pínu stressandi en samt bara meira gaman enda á maður ekkert að vera að missa sig í einhverju stresskasti heldur bara hafa gaman af ekki satt ?? En ég samt missti mig aðeins við greiið manninn minn og það í gervihnattasímann út á sjó en hann bara tók því með jafnaðargeði
Ég fór með henni Bryndísi minn "skreitingarkonu" með meiru í Blómaval í gær og við pöntuðum skreitingar á bílinn okkar, 6 slaufur og svo verður settur borði svo hann verður voða fínn Svo skoðuðum við líka kerti til að láta skrifa á en gátum nú ekki alveg ákveðið okkur sem kemur nú ekki á óvart.... Við ætlum að bíða þangað til tengdó sendir mér skreytingarnar til að sjá litinn og sonna ...
En talandi um ræktina á ég ekki bara að sleppa því heheheheh.. Nei djók ´En ég man nú eiginlega bara ekki hvernig Bjarg lítur út Ef einhver getur sagt mér það má hann það alveg heheheh...
Það er nefninlega svona 2 vikur síðan ég hef komist í ræktina En það verður kílt á það eftir helgi þar að segja ef dóttir mín verður nú ekki orðin veik, sem ég ætla rétt að vona ekki !!! ég verð nú aðeins að tóna kroppinn minn upp á þessum mánuði framm að brúðkaupinu svona til að láta massann aðeins skína betur út hehehhe...Hann er nefninlega bara í smá feluleik þessa dagan eða reyndar búin að vera það svolítið lengi en bara pínu Er ég nokkuð að verða klikk eða heheheh..
En mig hlakkar svo til á morgun því það verður smá gurlý kvöld á morgu eitt glas af hvítvíni og annað af rauðvíni og kannski eitt af rósavíni hmmmmm líst ykkur ekki vel á það ????
Annars er ég farin að skella á mig smá brúnkukremi NEI djók...þeir fatta sem hittu mig í dag hehehehhe..... annars bara yfir og út Jónkó ofurskvís !!!!
» 16 hafa sagt sína skoðun
Mín hefur aldeylis staðið sig vel í blogginu hahahahha. Nei ekki alveg en ég er þó að reyna að gera bragarbót eins og maður segir.....
Eins og titillinn gaf til kinna þá er ég búin að léttast um heil 2 kíló síðan ég startaði þessu bloggi og þá eru 8 eftir til að ná markmiði mínu Svo þetta kemur hægt og rólega..... Vildi samt óska að þetta kæmi hratt og fljótt Því ég er nú ekki sú þolinmóðasta í heiminum....
Annars eru bara bæði börnin mín búin að fá HLAUPABÓLUNA MIKLU !!! svo það hefur ekki verið farið neitt í ræktina eða gert neitt af viti á þessum bæ... bara annast veik börn og æft sig í hjúkku hlutverkinu hahahahha...
Hvað haldið þið að Jónína hafi fengið á laugardagskvöldið ??? ég fékk svona ægilega djamm löngun !!!! og það er nú langt síðan það hefur komið fyrir...eða svona mig langaði svo að vera að fara að hitta allra stelpurnar og við værum að mála okkur og gera okkur fínar og pæjast aðeins ohhhh það er svo langt síðan það hefur gerst...en styttist óðum því mínar yndislegu vinkonur eru að skipuleggja iðburð ársins ef ég þekki þær nú rétt þessar elskur GÆSUNINA mína ohhhh það á pottþétt efir að vera geggjað.....
Svo vorum við Bryndís aðeins að reikna og það eru bara 6 helgar þangað til brúðkaupið mitt verður og það er eiginlega bara full dagsskrá hver einasta helgi þangað til.....
En ég er að spá í að fara að mála mig og aðeins svona flikka upp á lúkkið....adios
» 13 hafa sagt sína skoðun
jæja kellan bara ekkert búin að blogga í nokkra daga !!!!!
Ég fór í ræktina í gær og hinn voða ánægð með mig því loksins var hún dóttir mín orðin frísk svo ég komst En hvað haldiði ??? Reynir Franz er kominn með HLAUPABÓLUNA svo hann er bara heima með mömmu kallinn... og þá kemst mamma ekkert í ræktina en svona er að vera mamma, allt óútreiknanlegt.
Svo allt í einu í gær þá fékk ég þessa ÆGILEGU ferðalöngun mig langaði svo mikið að fara í sumarbústað og gera eitthvað annað en að hanga heima og eyða pening í RÚMFÓ og aðra vitleysu...Svo síminn hjá Jónkó var alveg rauðglóandi við að reyna að hringja og finna einhvern sumarbústað á næstunni, en auðvitað var ekki neitt laus ekki einu sinni pínkulítill hundakofi
Svo sú hugmynd var nú fljót að drepast, en kannski ég fari bara í útilegu í staðinn með krakkana og taki einhverja skemmtilega með mér hvað segiði um það að fara kannski bara í smá útilegu næstu helgi ????? Endilega sem flestir að vera með ég var samt smá smeik með hana Töru Sól mína út af því hún var með lungnabólgu en það hlýtur að vera í lagi í svona góðu veðri....
Svo er bara Binnan að fara að DJAMMA vúhúúú það á sko ábyggilega eftir að vera stuð á kellunni Binna þú verður nú að vera dugleg að heilla gæjana og segja þeim hvað þú ert að læra hahahahhahah......En þú átt sko eftir að verða svaða gella með nýja síða hárið þitt....
Ég ætla að láta þetta gott heita og fara út og fá mér ferskt loft ADIOS allir saman......
» 5 hafa sagt sína skoðun
Það er búið að vera ekkert smá gott veður í dag bara sól og logn..... og auðvitað þurfti Jónína að vakna upp á þessum æðislega degi með hita !!!! ég er bara ekkert að ná þessari drullu úr mér ég skil þetta ekki......En auðvitað harkaði maður nú af sér þreif,lagaði til og sinnti börnunum því þó mamma verði veik þá fer ekkert á hold eins og barnauppeldi og húsverk hehehhehehe....
Annars kíktum við mæðgur á ömmu Höllu og Tara Sól var eitthvað voðalega pirruð þar þannig við stoppuðum ekkert voðalega lengi heldur kíktum til Rósu mömmu hennar Bríslu því við sáum bílinn hennar en þá var Brísla bara úti að labba ekkert smá dugleg enda veðrið alveg til þess.Ég hefði nú átt að taka hana til fyrirmyndar og hreyfa á mér rassinn hehehehe.... En ef ég hefði ekki verið svona hálflasin þá hefði ég nú gert það......
Tara Sól fer til dagmömmunnar á morgun og þá ætla ég að fara í ræktina og skella mér eins og í einn ljósatíma ekki veitir af....ótrúlegt hvað liturinn er fljótur að fara af manni og svo eru þessi ljósakort orðin svo rándýr !!!!!!! 6000 kall fyrir 10 tíma kort það er náttúrulega bara RIPP OFF en samt lætur maður sig hafa það..... ég hef ekkert getað stundað ræktina af kappi út ef litlu lasarus dúllunni minni, en vonandi fer hún bara að verða búin með þennann veikindapakka þessi elska......
Pælið í því akkúrat í gær voru 2 mánuðir þangað til ég er orðin lögleg FRÚ ! ahhhahhaha Jónkó orðin frú mér finnst það bara geðveikt fyndið því þegar ég var lítil fannst mér bara frúr vera gamlar kellingar með loðnar vörtur hehehheheh.... en svoleiðis er það víst ekki....mig hlakkar ekkert smá til.
Ég er einmitt að fara að láta sauma á mig kjólinn núna eftir helgi oh my god stelpur hvað það verður nú fyndið !!!!! Jónkó í kjól ég hef einu sinni verið í kjól og það var á fermingunni minn og þá var ég neidd til þess af henni móður minni...
En þetta á eftir að vera æðislegt og mig hlakkar ekkert smá til að sjá hvað dúllurnar mínar ætla að gera við mig á gæsuninni jæja ætla að láta þetta duga í bili og fara einu sinni að sofa á skikkanlegum tíma svona eftir smá stund bæjó.....
» 6 hafa sagt sína skoðun
Já hér er sko sannarlega allt í drasli !!!! Það er alveg sama hvað ég laga til og þríf það er allt komið út um allt á núll einni!: ALVEG ÓTRÚLEGT. En svona er bara að vera orðin mamma, það fylgir víst þessum börnum blessað draslið hehehhehe.
Hvað haldið þið að Jónína hafi gert í gærkvöldi ???? Já ég opnaði mér hvítvínsflösku og sat hérna ein að drekka hvítvín og kjafta í símann, og það var bara rosa stuð ég heyrði í Birgittu,Hiddu og auðvitað henni Bryndísi minn líka Mikið rosalega var líka gott að leggjast inn í rúm og steinsofna bara svona strax !!!!! Svo voru börnin mín líka svo góð að þau sváfu til klukkan hálf 9 í morgun og það er nú ekki oft sem það gerist á þessum bæ að maður fær að sofa út ...... En gerist þó
Ég fór ekkert á brettið mitt né í ræktina og er búin að sukka í matnum eða sukka og ekki sukka ég nefninlega borðaði 1 brauðsneið og svo bara ekki neitt fyrr en í kvöldmatnum og þá grillaði ég rosa gott svínakjöt með bahamas og jamaica marineringu frá Goða ummmm best í heimi.....svo fékk ég mér auðvitað kartöflu bakaða,salat og hvítlaukssósu frá Kjarnafæði ummmmm hún er best í heimi og er líka fituminnsta sósan á markaðnum svo það er þó ekki allt slæmt við þetta OK EIN Í ROSA AFNEITUN AÐ REYNA AÐ RÉTTLÆTA ÞETTA FYRIR SJÁLFRI SÉR svo fékk ég mér náttlega það sem er minn MESTI veikleiki COCA COLA usssssssssss það er best í heimi ég gæti hreinlega lifað á coca cola
Á morgun byrja ég svo að passa mataræðið, en ætla samt ekki að skera allt alveg niður heldur bara svona smá í einu !!!!! annars bara spring ég....Svo er ég líka að fara að hætta að nota þessi HORMÓNA getnaðarvarnalyf !!!!! OG ÞÁ HLÝT ÉG AÐ BYRJA AÐ LÉTTAST, Ég fór til hans Edwards í dag og ég ætla bara að fá mér gömlu góðu lykkjuna og sjá hvernig það virkar
Ég fór einmitt að hugsa það í dag að ég hef aldrey verið grennri og eins dugleg að hreyfa mig og passa mataræðið eins og þegar við vorum að reyna að búa hana Töru Sól til þá var ég ekki á neinni pillu og þá var ég mjög dugleg að léttast.......Vonandi gerist það sama núna En auðvitað er það samspil hreyfingar og mataræðis sem skiptir mestu máli því ekki vil ég bara passa matinn og verða svo ÓGEÐSLEGA LIN nei,nei,nei ekki það að ég sé eitthvað stinn núna hehehehehheheh....
Jæja ég er bara farin að bulla tóma steipu um mataræði og bla bla bla....Við áttum ekkert smá notalegann dag í dag.....vöknuðum og kíktum til Fjólu og Ella eða börnin fóru þangað meðan ég fór til læknis,svo fór ég og keypti snúð handa Reyni Franz sem hann náttlega gúffaði í sig einn tveir og bingó
Svo var bara skellt Töru í kerruna sína og við mæðginin horfðum á Latabæ en mamman reyndar sofnaði svo fórum við á glerártorg og smá í heimsóknir og kíktum líka smá á Bryndísi í vinnuna og svo bara heim að grilla og Sigrún systir kom í mat ásamt Gunnu systir og Hinrik kærastanum hennar Gunnu.... SVo já þetta var bara voðalega notalegur dagur..... bara rólegt og gott.... ég bið að heilsa í bili
Góðann daginn góðir hálsar eins og kom fyrir í fyrirsögninni þá er NAMMIDAGUR núna í dag !!!!! og þá auðvitað langar mér ekkert í nammi, en ef það væri mánudagur þá væri ég að DEYJA úr nammilöngun og einhverri óhollustu löngun Af hverju er ég svona púfffffffff.....
En ég er búin að fara á hlaupabrettið mitt góða í dag var 35 mínútur og rennandi sveitt hahhahah enda er nú þolið ekki mikið þessa dagana..En ég er þó að reyna það er allavega plús finnst mér........ Svo ætlum við vinkonurnar að fara með börnin okkar í Kjarnaskóg í dag og taka með nesti og fullt af handklæðum svo að allir geti nú farið að sulla í læknum Ég held að honum Reyni mínum eigi EKKERT eftir að finnast það leyðinlegt !!!!! Enda er hann nú meiri grallarinn þessi elska.
Ég var einmitt að tala við Birgittu áðan og segja henni frá síðunni, þegar við blogguðum allar saman vinkonurnar þá vorum við MJÖG duglegar í ræktinni og pössuðum mataræðið okkar enda vorum við nokkrar aðeins minni svona um okkur Svo ég get þetta alveg aftur !!!!! ekkert mál....
Dóttir mín sefur og ég er að hugsa um að fara að gera eitthvað hérna af viti eins og að laga til og þrífa aðeins ekki veitir af...bless í bili elskurnar mínar.....
» 4 hafa sagt sína skoðun
Jæja Jónkó bara komin með blogg hvernig líst ykkur svo á það ??? En ákvörðun mín um það að byrja að blogga kom vegna þess að eins og þið vitið mínar kæru vinkonur er ég ALLTAF að reyna að vera í megrun sem gengu svona upp og ofan !! Því ákvað ég bara að gera þessu eilífðar megrun mína opinbera þá bara verð ég að standa mig ekki satt ??? og þið verðið að vera ógeðslega duglegar að kíla mig áfram múhhhhhaaaaaa
Ég ætla að skrifa hér um það hvað ég geri eins og æfingarnar mínar,MATURINN MINN ,skapið mitt og bara já svona hvernig gengur ég ætla meira að segja að vera svo kræf að setja inn cm mælingar en ekki þyngdina Þetta á POTTÞÉTT eftir að hjálpa mér.
Þetta er ekki eðlilegt að vera búin að þyngjast um 10 kg síðan í mars eftir að ég hætti með Töru mína á brjósti !!!! og ég sem er að fara að gifta mig eftir 2 mánuði KRÆST !!!!! og ég ætlaði einmitt að vera búin að leggja af en ekki bæta á mig...... Svo nú þýðir ekkert væl heldur bara kíla á þetta ég meina ég er með hlaupabretti hérna heima sem mamma lánaði mér spes af því að Tara Sól er búin að vera svo mikið veik að ég hef aldrey komist í ræktina nema eitt og eitt skipti... Þannig nú er það bara dugnaðurinn og numer 1 2 og 3 er þetta MATARÆÐI ég skal taka þetta vera bara nógu ákveðin.
Ég bíð alltaf eftir þeim degi sem ég vakna upp einn morgununn og bara tek mataræðið ALVEG í gegn og ekkert mál....en það gerist víst ekki svoleiðis heldur verð ég sjálf að hafa AGANN í þetta og hætta að vorkenna sjálfri mér ekki satt lesandi góður ????
Ég segi þetta gott í bili og skrifa aftur á morgun svo ég segi bara góða nótt og dreymi ykkur fallega
» 0 hafa sagt sína skoðun